Reynifell F-gata 2, 851 Hella
36.900.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
64 m2
36.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
40.450.000
Fasteignamat
30.000.000

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.

REYNIFELL F-GATA 2.
Um er að ræða 64,5 fermetra sumarhús sem stendur á 6.750 fm eignarlóð í landi jarðarinnar Reynifells á Rangárvöllum, skammt frá bökkum Eystri-Rangár.  Húsið stendur hátt í landinu og þaðan er gott útsýni m.a. til Þríhyrnings og Heklu og til vesturs yfir ofanverða Rangárvelli og Suðurlandsundirlendið..  Húsið er timburhús sem stendur á steyptum súlum, byggt árið 2008.  Ytra byrði er klætt með standandi viðarklæðningu.  Húsið er einangrað með steinull, 145 mm í veggjum og 220 mm í lofti.  Í því eru timburgluggar með tvöföldu gleri.  Að innan verður eru veggir og loft klædd með panel.  Húsið telur:  Anddyri með flísum á gólfi.  Alrými með parketi á gólfi, ágætri eldhúsinnréttingu með eldavél, ofni og kæliskáp, þar er einnig kamína.  Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum.  Skápur er í einu herberginu og kojur í öðru.  Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtu og hurð út.  Við húsið er stór verönd úr timbri með heitum potti.  Heimreið og bílastæði er malarborið og lóðin er vel gróin.  En í hana hefur verið plantað um 1.000 trjáplöntum.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528 og netfang: [email protected].

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.