Fannberg fasteignasala ehf. sími: 487-5028.
PARHÚS VIÐ MÝRARBRAUT 6 Í VÍK.
Húsið er byggt úr timbri árið 2020 og er klætt að utan verðu með liggjandi álklæðningu á veggjum og bárujárn er á þaki. Í húsinu er plastgluggar með þreföldu gleri. Eignin telur:
Anddyri með flísum á gólfi.
Gang með parketi á gólfi.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum, skápur er í öðru þeirra.
Sambyggt eldhús og stofu með parketi á gólfi og góðri eldhúsinnréttingu. Hurð er þaðan út á verönd.
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtu og innréttingu.
Þvottahús, sem jafnframt er
bakinngangur í húsið með flisum á gólfi og innréttingu. Við húsið er verönd úr timbri með skjólveggjum og hellulagt bifreiðastæði og gangstétt.
Á lóðinni er óskráður
geymsluskúr byggður úr timbri á steyptar súlur. Skúrinn er klæddur að utan með bárujárni. Að innan verðu eru veggir og loft einangruð og klædd. Í skúrnum er rafmagn.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.Allar nánari upplýsingar veita:
Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877, netfang:
[email protected]Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang:
[email protected]Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.