Dynskálar 51 mhl 5, 850 Hella
39.800.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
2 herb.
144 m2
39.800.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
15.350.000

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF sími: 487-5028

ATVINNUHÚSNÆÐI VIÐ DYNSKÁLA 51 Á HELLU.

Um er að ræða matshluta 0105 í nýlegu fjöleignaratvinnuhúsnæði, stærð 144,5 m² að birtu flatarmáli, grunnflötur 102 m² og mililoft 42,5 m².  Húsnæðið er í útleigu.

Uppbygging húss:
Húsið er byggt ofan á steypta sökkla.

Gólfplata:
Hefðbundin staðsteypt plata, einangruð að innan. Öll gólf eru vélslípuð. Neysluvatnslagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningum undir gólfplötu.

Veggir/ þak / þakkantur / burðarvirki:
Allir útveggir og þak hússins eru úr yleiningum, samlokueiningar, svo og milliveggir. Burðarvirki er límtré. Litur klæðningar að utanverðu er RAL7016 og að innan RAL 9010. Þakkantur er einfaldur, stálklæddur í sama lit og þakefni með utanáliggjandi álrennum og niðurfallsrörum í sama lit.

Hæðir:
Mænishæð er 7,13 frá gólfplötu í efri brún mænis. Við útvegg er lofthæð 5,63m frá gólfplötu upp á efri brún þaks. Milligólfið er í 3,20m hæð frá gólfplötu.

Gluggar og hurðir:
Innkeyrsluhurðir eru frá viðurkenndum og þekktu framleiðanda í góðum gæðum, og rafmótoropnun. Þær eru 3,5m á breidd og 4,35m á hæð og 3,0m á breidd og 2,5m á hæð. Gönguhurðir og gluggar eru úr viðhaldsfríu PVC plasti með tvöföldu einangrunargleri.

Frárennslis og neysluvatnslagnir:
Skólp‐ og regnvatnslagnir eru fullfrágengnar og tengdar fráveitukerfi í götu. Frárennslisstútar fyrir salerni og skolvask. Gólfniðurfall er fyrir innan allar innkeyrsluhurðir. Neysluvatn lagt inn í hverja starfseiningu.

Hitakerfi:
Hitablásari í hverri starfseiningu. Hiti er sameiginlegur, mælir í inntaks-/tæknirými.

Rafmagn:
Aðaltafla með mælum fyrir hverja starfseiningu frágengin í inntaks-/tæknirými. Greinatafla frágengin í hverri starfseiningu með einum þriggja fasa tengli við hliðina. Tenglar í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagna hönnuðar. Full lýsing (LED) í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagna hönnuðar sem uppfyllir viðkomandi reglur. Raflagnir lagðar í rörum, auðvelt er að breyta ljósum, slökkvurum, tenglum og slíku ef þurfa þykir. Útiljós við hurðir á hverri starfseiningu, sem stjórnast úr sameiginlegu inntaks-/tæknirými. Gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla í töflu í hverri einingu.

Lóð:
Lóðin er malbikuð.

Annað:
Tengigjöld hita, rafmagns og kalds vatns eru greidd og allar veitur tengdar við húsið. Gatnagerðargjöld eru greidd.  Skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati verður lagt á eftir lokaúttekt og greiðist af kaupanda. Virðisaukaskatts kvöð hvílir á húsinu sem kaupandi yfirtekur, rúmlega 4,0 m.kr. 

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang: [email protected]

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.