Ketilhúshagi 39, 851 Hella
26.000.000 Kr.
Sumarhús
3 herb.
36 m2
26.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1994
Brunabótamat
21.400.000
Fasteignamat
14.000.000

Um er að ræða timburhús reist á staurum árið 1994 og klætt að utanverðu með liggjandi timburklæðningu.  Að innan verðu eru veggir og loft klædd með panel.  Húsið telur: Anddyri með flísum á gólfi.  Þvottahús með sér inngangi með máluðu gólfi.  Alrými með parketi á gólfi, nýrri innréttingu og hurð úr á verönd.  Sjónvarpsherbergi með parketi á gólfi.  Svefnherbergi með parketi á gólfi og hurð út á verönd.  Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtu og innréttingu.  Við húsið er verönd úr timbri.  Húsið hefur verið mikið endurnýjað, nýtt gler í eldhúsi og stofu, ný gólfefni, klæðning á ytra byrði yfirfarin, ný yfirbygging á sólpall, nýjar skólplagnir, nýjar hita og raflagnir.  Á því eru tvær viðbyggingar, ca 16 fm, sem ekki eru inni í uppgefnum fermetrafjölda.  Í húsinu er svefnloft.  Með í kaupunum fylgir timburhús, sem komið hefur verið fyrir á lóðinni.  Það hús er hitað upp með affalli heituveitu af bústaðnum.  Hvítur skúr við sumarbústaðinn fylgir ekki með við sölu.  Lóðin er með all miklum trjágróðri.  Í Ketilhúshaga er félag húseigenda.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang: [email protected]
Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877, netfang: [email protected]

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.