FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028
GADDSTAÐIR 24.
Um er að ræða 6.000 fermetra íbúðarhúsalóð úr landi jarðarinnar Gaddstaða á Rangárvöllum. Lóðin er staðsett á skipulögðu svæði fyrir íbúðarhúsabyggð, sunnan Suðurlandsvegar, skammt austan byggðarinnar á Hellu. Aðgengi að henni er frá Suðurlandsvegi. Á staðnum er fallegt útsýni m.a. til Heklu og Eyjafjallajökuls. Heimilað byggingarmagn á lóðinni er 300 fm. og má byggja íbúðarhús, bílskúr, eða skemmu og gestahús. Stutt er í útivistarsvæðið í Aldamótaskógi. Rafmagn og kalt vatn er við lóðarmörk.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528 og netfang:
[email protected]Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.