FANNBERG FASTEIGNASALA EHF, sími: 487-8688
EINBÝLISHÚS MEÐ BÍLSKÚR VIÐ SANDÖLDU 12 Á HELLU
Húsið er byggt úr timbri og er klætt að utanverðu með liggjandi stálklæðningu. Þakkantur er klæddur með áli. Gluggar eru úr timbri, en ytra byrði þeirra er klætt með áli. Eignin telur:
Anddyri með flísum á gólfi og skáp.
Geymsluloft er ofan við anddyrið.
Sambyggt eldhús og stofu með parketi á gólfi og vandaðri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Hurð er úr stofunni út í garðinn.
Herbergjagang með parketi á gólfi og þakgluggum.
Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum, skápur er í hjónaherberginu.
Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, sturtu og innréttingu.
Þvottahús, sem jafnframt er bakinngangur í húsið með flísum á gólfi og innréttingu. Innangegnt er úr anddyri í
bílskúrinn. Hann er frágenginn með flísalögðu gólfi, innkeyrsluhurð og göngudyrum. Óuppsettur hurðaopnari fylgir með. Í bílskúrnum eru lagnir fyrir þvottavél, sem skapar þann möguleika að breyta þvottahúsinu í fjórða svefnherbergið. Hitalagnir eru í gólfum með stýringu í hverju herbergi. Loftræstikerfi er í eldhúsi, baði og þvottahúsi. Við húsið er verönd úr timbri og sorptunnuskýli. Lóðin er þökulögð og bifreiðastæði er malarborið.
Kaupendur greiða engin umsýlsugjöldAllar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang:
[email protected]