FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028
RAÐHÚS MEÐ BÍLSKÚR VIÐ KJARRÖLDU 4B Á HELLU.
Um er að ræða fullbúna íbúð í nýlegu raðhúsi, sem byggt er út timbri árið 2023 og er klætt að utanverðu með hvítu og svörtu báruáli. Eignin telur:
Anddyri með flísum á gólfi og fataskáp. Sambyggða
stofu, sjónvarpshol og eldhús með harðparketi á gólfi og vandaðri innréttingu. Hurð er úr stofunni út í garðinn.
Þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfum og skápum.
fataherbergi er inn af hjónaherbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum í sturtu, inréttingu og upphengdu salerni.
Bílskúrinn er með epoxy á gólfi. Bifreiðastæði er malarborið og lóðin er grófjöfnuð.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang:
[email protected]Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.