Strönd lóð 6 , 851 Hella
49.000.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
73 m2
49.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
40.450.000
Fasteignamat
36.350.000

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF, sími: 487-5028

SUMARHÚS Á STRÖND LÓÐ 6 Í RANGÁRÞINGI YTRA.
Um er að ræða 73,1 fm sumarhús, byggt úr timbri á steyptar undirstöður árið 2004 og er klætt að utanverðu með liggjandi timburklæðningu.  Að innanverður eru veggir og loft klædd með hvíttuðum panel.  Eignin telur:  Hol með plastparketi á gólfi.  Sambyggt eldhús og stofu með plastparketi á gólfi, ágætri innréttingu með eldavél, viftu, uppþvottavél, örbylgjuofni og ísskáp.  Tvöföld hurð er út á verönd úr þessu rými.  Tvö svefnherbergi með plastparketi á gólfum og skápum.  Baðherbergi með dúk á gólfi og plötum á veggjum.  Þar er sturta, handklæðaofn og hurð út á verönd.  Yfir hluta hússins er svefnloft.  Við húsið er útigeymsla og mhverfis það er timburverönd með heitum potti.  Inbú í húsinu fylgir með við sölu.  Húsið er staðsett við golfvöllinn á Strönd á Rangárvöllum.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang: [email protected]
Ágúst Kristjánsson lgf. gsm: 893-8877, netfang: [email protected]

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.