HALLGERÐARTÚN 56Fannberg Fasteignasala hefur til sölu eftirfarandi eign.Nýtt 130 m2 parhús við Hallgerðartún 56 á Hvolsvelli. Húsið er á einni hæð og telur þrjú svefnherbergi, björt stofa með stórum gluggum og vel búið eldhús, gott anddyri og gangur ásamt rúmgóðu þvottahúsi og geymslu. Húsið hefur garð í suður og verönd þar sem hægt er að tengja heitan pott.
Húsið er tilbúið til afhendingar strax.Eldhús og stofa:Eldhús og stofa er í samliggjandi opnu rými. Eldhúsið er hvítt og rúmgott með hvítum JKE innréttingum, háfi, og stállituðum Electrolux heimilstækjum (helluborð, uppþvottavél, ísskápur, ofn og örbylgjuofn). Svartar borðblötur og tvöfaldur vaskur. Útgengt er úr eldhúsi á verönd í suður. Stofan er með mikillri lofthæð og fallegum gluggum í suður.
Gólfefni:
Íbúðin er afhent með flísalögðu anddyri, þvottahúsi, baðherbergi og geymslu, flísar frá Álfaborg . Á öðrum gólfflötum er fallegt, Natural Bayford Oak, eikar harðparket 10x246x2050mm frá BYKO.
Baðherbergi:Gólf er flísalagt, með ,,walk in“ sturtu, 90 x 120cm og Grohe blöndunartækjum og upphengt Grohe salerni. Speglaskápur og vaskaskápur eru frá JKE. Veggir í kringum sturtu og salerni eru flísalagðir upp í loft með flísum frá Álfaborg. Öryggisniðurfall er í rýminu ásamt niðurfalli í sturtu.
Þvottahús:Þvottahús er rúmgott með flísalögðu gólfi. Innrétting frá JKE með skolvaski og svartri borðplötu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Rafmagnstafla er í þvottahúsi.
Herbergi :
Það eru þrjú svefnherbergi með fataskápum frá JKE. Það er einnig tvöfaldur fataskápur frá JKE í anddyri.
Innihurði og loft:
Innihurðir eru hvítar með felliþröskuldum, nema í votrými þar eru þröskuldar. Loft eru klædd með hvítum loftaplötum, LED ljós eru uppsett í öllum rýmum, dimmer er í öllum rýmum nema í þvottahúsi, salerni og geymslu
Gluggar, gler og útidyrahurðir:
Gluggar eru álklæddir frá NorDan í Noregi og eru með þreföldu gleri. Útidyrahurðir og svalahurð eru einnig frá NorDan.
Geymsla:Geymsla er með sér inngangi utan frá. Gólf í geymslu er flísalagt og þar er hluti inntaka fyrir húsið. Möguleiki er á að tengja snjóbræðslu í stétt/bílastæði.
Nánari upplýsinga gefur
Ágúst Kristjánsson Lgf hjá Fannberg fasteignasölu í síma 4875028 eða 8938877