FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.
EINBÝLISHÚS VIÐ ÞRÚÐVANG 20 Á HELLU.
Húsið, sem er á tveimur hæðum er byggt úr steinsteypu árið 1964 og er múrað og málað að utanverðu. Á efri hæðinni er íbúð, en neðri hæðin hefur verið nýtt til atvinnustarfsemi. Á jarðhæðinni er flísalagt
anddyri fyrir íbúðina og þaðan liggur dúklagður steyptur stigi upp á efri hæðina sem telur:
Sambyggt eldhús og stofu með parketi og flísum á gólfi, ágætri innréttingu með gaseldavél, háf og ofni og hurð út á svalir.
Þvottahús með máluðu gólfi.
Herbergjagang með parketi á gólfi.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum, skápur er í öðru þeirra.
Baðherbergi með korkflísum á gólfi, mósaikflísum á veggjum, baðkeri með sturtu og innréttingu. Sérinngangur er á neðri hæðina, sem telur:
Afgreiðslu og mótttöku með dúk og korkflísum á gólfi.
Tvo sali með korkflísum á gólfum.
Herbergi með korkflísum á gólfi.
Salerni með máluðu gólfi.
Tvær geymslur með máluðum gólfum.
Bílskúr með máluðu gólfi. Við húsið er malbikað rúmgott bifreiðastæði og gróinn gaður. Í húsinu er nýtt rafmagnsinntak, en að öðru leyti eru raflagnir upprunalegar. Húsið stendur skammt frá bakka Ytri Rangár og úr því er einkar fallegt útsýni út á ána.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld:Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang:
[email protected]Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.