FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.
EINBÝLISHÚS MEÐ AUKAÍBÚÐ VIÐ VESTMANNABRAUT 57 Í VESTMANNAEYJUM.
Húsið sem er kjallari, hæð og ris er byggt úr steinsteypu og klætt að utan með lituðu stáli. Nýlega hefur verið skipt um glugga og gler á suðurhlið hússins. Inngangur af götu er um steyptar tröppur upp á 2 hæð. Inngangurinn er yfirbyggður. Aðalíbúðin er á annari hæð og í risi. Hún telur á annari hæð:
Anddyri með flísum á gólfi.
Gestasalerni með flísum á veggjum og gólfi, þar er lítil innrétting.
Hol með flisum á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi og nýlegri innréttingu.
Stofu með parketi á gólfi. Úr holi liggur steyptur stigi upp í risið, sem telur:
Gang með parketi og flísum á gólfi, þar er innbyggður skápur.
Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, baðkeri og lítillli innréttingu.
Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi. Í kjallaranum er
aukaíbúð með sérinngangi. Unnið er að endurnýjun á íbúðinni. Hún telur:
Anddyri með parketi á gólfi.
Stofu með parketi á gólfi.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, þar er sturta.
Eldhús með parketi á gólif. Eftir er að setja upp innréttingu í eldhúsinu, en meiri hluti hennar fylgir með óuppsettur. Við húsið er steypt gangstétt og gróinn bakgarður. Með útleigu gefur eignin góða tekjumöguleika. Seljandi er reiðbúinn að skoða skipti á annari eign.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.Allar nánari upplýsingar veita:
Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877, netfang:
[email protected].
Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang:
[email protected] Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.