Lyngalda 1B, 850 Hella
50.200.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
85 m2
50.200.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.

RAÐHÚS VIÐ LYNGÖLDU 1B Á HELLU.
Um er að ræða raðhús í byggingu, stærð er 85,1 fm. Íbúðin telur; Anddyri, sambyggða stofu og eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.  Uppgefið verð miðast við fullbúna íbúð samkvæmt neðangreindri skilalýsingu.  Sjá teikningar í myndasafni með eigninni.

Skilalýsing:
Fullgerð íbúð, byggingarstig 4B

Teikningar:
Allar teikningar liggja fyrir þ.e. aðalteikningar, sökkulteikningar, burðarvirkisteikningar, glugga- og hurðateikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.

Gröftur og fylling:
Grafið er niður og fyllt í með grófri möl sem er þjöppuð

Frágangur lóðar:
Lóðin skilast með þökulögn, mulning í bílaplani og ruslatunnuskýli, lok fylgja ekki.

Botnplata:
Einangrun undir plötu er 100mm plasteinangrun. Steypa er af gerðinni S-250.

Sökklar og botnplata:
Sökklar er Sökkulkubbar frá Polynorth og eru 750mm háir. Járnabinding er 8xK12 kambstál í sökkli, og K10 standandi í ytri grind, K10 kambstál í tengijárnum við plötu. Einangrun á innanverða sökkulveggi er 50mm plasteinangrun og 70mm utan á sökkul. Einangrun að utan er klædd með viroc plötum. Einangrun undir plötu er 100mm plasteinangrun. Járnabinding er 6mm járnamottugrind. Steypa er af gerðinni S-250.

Lagnir:
Skólp-og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu.
Hefðbundið gólfhitakerfi er í íbúðum, handklæðaofn er á baði.
Rör í rör kerfi fyrir neysluvatn er undir botnplötu og tengt við tengikistur.
Gólfhitakerfi skilast fullfrágengið með stýringum.

Útveggir:
Útveggir eru byggðir upp úr styrkleikaflokkuðu timbri, 45x145mm og klæddir með 9mm krossvið að utan til stífingar. Útveggjaklæðning er er litað bárujárn.
Að innan eru veggir einangraðir og klæddir með 2x 13mm gipsplötum, spartslaðir, grunnaðir og málaðir í ljósum lit.

Innveggir:
Innveggir eru úr 70mm blikkstoðum, einangraðir með 50mm einangrun og síðan klæddir með 2x13mm gipsi beggja vegna.
Veggir eru spartslaðir, grunnaðir og málaðir í ljósum lit.
Brunaveggur milli íbúða
Brunaveggir milli íbúða eru byggðir upp úr 2x45x95mm timburgrind með loftrúmi á milli, einangraðir með 95mm þilull í veggjum og klæddir með 2x13mm gipsi beggja vegna íbúðarmegin.

Þak og loft:
Þak er byggt upp úr kraftsperrum, klætt með borðvið. Þakpappi, og ofan á þakpappa er klætt með bárujárni. Loftræsting er samkvæmt grunnmynd aðalteikningar.
Að innan eru loft einangruð og klædd með 1x13mm gipsklæðningu spartslað, grunnað og málað í ljósum lit.
Þakskegg
Þakkanturinn er tvö borð – vatnsklæðning, undirklæðningin er úr timbri. Rennur eru innbyggðar í þakskegg, tengdar fráveitukerfi í götu. Niðurfallsrör eru úr sama efni.
Allur þakkantur er málaður með svörtum lit.

Gluggar og hurðir:
Glugga og hurðakarmar eru málaðir að innan og með álkápu að utan.
Frágangur flasningar í kringum glugga og hurðir er í sama lit.

Innréttingar:
Sturta er með glerskilrúmi og eru veggir við sturtu flísalagðir með samskonar flísum og eru á gólfi, blöndunartæki fylgja.
Innrétting á baði er 800mm með 2 skúffum og vaski ofaná, blöndunartæki fylgja.
Upphengt klósett er á baði með hæglokandi setu.
Innrétting er undir þvottavél á baði.
Innrétting í eldhúsi er með plastlagðri borðplötu, vaskur og blöndunartæki fylgja.
Heimilistæki: keramik helluborð.
Fataskápar eru í hjónaherbergi,
Fataskápur er í barnaherbergjum,
Fataskápur er í forstofu,
Innihurðir eru yfirfelldar hvítar, allar hurðir eru 800mm.

Gólfefni:
Gráar flísar eru á gólfum í forstofu, baðherbergi/þvottahúsi. Bílskúrsgólf er steypt plata.
Harðparket er á öðrum rýmum í viðarlit.

Frágangur lóðar:
Lóðin skilast með þökulögn, mulning í bílaplani og ruslatunnuskýli. Pallar og timburgrindverk skv teikningu fylgja ekki með.

Opinber gjöld:
Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. byggingarlóð, gatnagerð, byggingarleyfisgjald og stofngjald holræsa.
Inntaksgjöld vatns, rafmagns og hita eru ógreidd.
Skipulagsgjald kemur til greiðslu síðar og er ógreitt við afhendingu, (kaupandi greiðir).

Afhendingartími:
Afhendingartími íbúðar er áætlaður apríl 2025.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf.  gsm: 863-9528, netfang: [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.