Skriðuvellir 3, 880 Kirkjubæjarklaustur
69.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
6 herb.
166 m2
69.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1974
Brunabótamat
77.750.000
Fasteignamat
37.950.000

Einbýlishús ásamt bílskúr að Skriðuvöllum 3 880 Kirkjubæjarklaustri
Húsið sem er 133,7 fm, byggt árið 1974, bílskúrinn er byggður árið 1980, hvoru tveggja steinsteypt  múrað og málað .
Anddyri, flísar á gólfi og fatahengi .
Gestasnyrting, flísar á gólfi.

Stofa og borðstofa, parket á gólfi gengið er út á verönd úr stofu.
Eldhús, með eldri innréttingu  ísskápur og uppþvottavél fylgja, dúkur á gólfi.
Búr, með hillum dúkur á gólfi.
Gangur, með parketi á gólfi..
4 svefnherbergi, dúkur á gólfum og fataskápar.
Baðherbergi, með innréttingu og baðkari, dúkur á gólfi og veggjum.
Bakinngangur, sem jafnframt er þvottahús inn af því er geymsla þar sem eru inntök fyrir rafmagn ásamt rafmagnstöflu.  Ljósleiðari er einnig kominn þar inn.

Bílskúr er múraður og málaður með innkeyrsluhurð og gönguhurð út í bakgarð .

Skipt var um járn á þaki og stóran hluta þakklæðningar þar sem kominn var fúi í þakviði fyrir ca.10 árum þá voru einnig endurnýjaðar neysluvatnslagnir innandyra og þær færðar utaná veggi.  Einnig var bætt við einangrun í þaki.
Gler og gluggar virðast í góðu lagi.
Garður er gróinn .

EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING

Nánari upplýsingar veita Guðmundur Einarsson lgf hjá Fannberg Fasteignasölu í síma 4875028 / 8639528 og Ágúst Kristjánsson lgf  4875028 / 8938877

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.