Parhús við Sólbakka 11 á HvolsvelliUm er að ræða 126,5 fm íbúð með bílskúr,sem er byggt úr timbri árið 2020 klætt með lituðu stáli .
Íbúðin telur :
Andyri með flísum á gólfi og fataskáp,
.Sambyggð stofa og eldhús með parketti á gólfi hurð er út úr stofu út á verönd.Vönduð eldhúsinnrétting með innbyggðum tækjum bakarofni, eldavél ,uppþvottavél ,ísskáp og frysti.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni með góðum fataskápum og parketti á gólfi.
Baðherbergi með innréttingu flísum á gólfi, upphengdu salerni og flísalagðri sturtu.
Þvottahús með innréttingu og vaski gólf er flísalagt þaðan er gengið inní
bílskúr sem er með máluðugólfi innkeyrsluhurð með opnara.Gólfhiti er í öllum rýmum.
Bílastæði og stéttar eru steypt og í því er hitalögn,við húsið er timburverönd með skjólveggjum.
Garður er gróinn.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld til fasteignasölunnarNánari upplýsingar veita Ágúst Kristjánsson í síma 893-8877, tölvupóstur
[email protected] og Guðmundur Einarsson, í síma 8639528, tölvupóstur
[email protected].
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.