FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.
SNJALLSTEINSHÖFÐI 4
Um er að ræða tæplega 6,9 hektara landspildu úr landi jarðarinnar Snjallsteinshöfða 2 í Rangárþingi ytra. Meiri hluti landsins er ræktað tún, en hluti þess er mólendi. Í landinu er hæð sem gæti hentað til húsbygginga, þaðan er víðsýnt og gott útsýni, m.a. til Heklu, Eyjafjallajökuls og Vestmannaeyja. Aðgengi að landinu er frá Árbæjarvegi. Stutt er í rafmagn og vatnsveitu.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld:
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528 og netfang:
[email protected]