FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028
SUMARHÚS VIÐ GÍSLHOLTSVATN.
Sumarhús á fallegum og veðursælum stað til sölu. Húsið er staðsett á 1.200 fm eignarlóð í lokuðu 26 bústaða hverfi við norðanvert Gíslholtsvatn í Holtum, þar sem veðursæld og fegurð er mikil. Bústaðurinn liggur neðst í hverfinu sem er skógi vaxið, með útsýni yfir vatnið. Húsið er klætt að utanverðu með liggjandi timburklæðningu. Að innan verðu eru veggir og loft klædd með panel og parket er á gólfum. Húsið telur:
Anddyri, þrjú svefnherbergi, sambyggt eldhús og stofu með ágætri innréttingu og hurð út á verönd.
Tvö baðherbergi með sturtum. Hurð er út á veröndina úr öðru baðherberginu.
Þvottahús með sérinngangi af verönd. Við húsið er
rúmgóð verönd með
heitum potti. Undir veröndinni er
báta- og tækjageymsla. Á lóðinni er um
15 fm gestahús með þriggja manna koju og tvískipt um 25 fm t
ækjageymsla. Þessi hús eru ekki með í uppgefnum fermetrafjölda á eigninni. Öll húsin er kynt með vatni frá hitaveitu tengdri dreifikerfi Or. Vatnsveita á svæðinu er á vegum sveitarfélagsins Rangárþings ytra. Á svæðinu er óskipt
4000 fermetra sameignarland, þar sem er vel tækjum búinn l
eikvöllur og
tækjageymsla með aðgengi að Gíslholtsvatni,
höfn fyrir smábáta og ból.
Veiðileyfi, á stöng og net í Gíslholtsvatni fylgja bústaðnum.
Helstu vegalengdir. Reykjavík 100 km, Hella 20 km. Landeyjarhöfn 70 km.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528 og netfang:
[email protected]