Kirkjuhvoll , 851 Hella
43.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
121 m2
43.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2000
Brunabótamat
60.450.000
Fasteignamat
30.900.000

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028

EINBÝLISHÚSIÐ KIRKJUHVOLL Í ÞYKKVABÆ
Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með aluzinkklæðningu. ( Var endurbyggt árið 2000 eftir bruna ) Eignin telur:  Anddyri með dúk á gólfi og fatahengi. Hol með dúk á gólfi. Stofu með parketi á gólfi. Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum, skápar eru í tveimur þeirra og úr einu þeirra er hurð út í garðinn. Eldhús með dúk á gólfi og ágætri innréttingu. Búr með dúk á gólfi. Baðherbergi/þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu og sturtuklefa. Undir hluta hússins er steyptur geymslukjallari, sem ekki er inni í uppgefnum fermetrafjölda. Sérinngangur er í hann. Við húsið er stór verönd úr timbri með skjólveggjum, malarborið bifreiðastæði og gróinn garður.  Geymsluskúr á lóðinni fylgir ekki með við sölu.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528 og netfang: [email protected]

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.