FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028
NÝTT EINBÝLISHÚS OG BÍLSKÚR VIÐ LANGÖLDU 30 Á HELLU.
Húsið afhendist fullbúið með grófjafnaðri lóð. Eignin telur:
Anddyri með skáp og flísum á gólfi.
Eldhús með vandaðri innréttingu með háglans hurðum, helluborði með viftu, ofni, innbyggðum kæliskáp og frystiskáp sem og uppþvottavél. Parket er á gólfi.
Stofu.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, stórum skáp og
sér baðherbergi með sturtu, innréttingu og flísum á gólfi.
Tvö svefnherbergi með skápum og parketi á gólfum.
Baðherbergi með sturtu, innréttingu, handklæðaofni og flísum á gólfi.
Þvottahús með innréttingu og flísum á gólfi. Stór
bílskúr með gönguhurð og innkeyrsluhurð. Óuppsettur hurðaopnari fylgir. Við húsið er steypt bifreiðastæði og stór verönd úr timbri með skjólveggum.
Byggingarlýsing:Undirstöðurnar eru steyptar og einangraðar.
Botnplatan er steypt með gólfhitalögnum.
Útveggir eru steyptir með plast kubbum einangraðir að utan og innan, 30cm þykkir
Utanhúss klæðning er wpc viðar klæðning, rakavarin.
Innanhúss eru veggir klæddir með krossvið og gifs plötum. Veggirnir eru málaðir, en að hluta klæddir með viðarklæðningu
Berandi innveggir eru timburveggir.
Þak og loftaklæðningar. Loftið er kætt með hvítri panelklæðningu. Þakið er timburþak. Steinullar einangrun. Bárujárnsklætt þak úr járni með innbrenndum lit frá Límtré vírnet
Gluggar og hurðir. PVC gluggar. Tvöfalt gler.
Loftun. Sett hefur verið inn 5 stk af Mitsubishi Lossnay loftræsti ventlum til að loftræsta vel húsið.
Hitun. Húsið er með gólfhitakerfi. Hitastigi er stýrt með hitastýringu á veggjum.
Utanhúss frágangur. Þökulögð lóð. Tengingar fyrir heitanpott eru tilbúnar í lóð. Óuppsettur heitur pottur fylgir.
Óskað er eftir tilboðum í eignina. Seljandi er tilbúin að skoða uppítöku á annarri eign.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf: gsm:863-9528, netfang:
[email protected].