FANNBERG FASTEIGNASALA EHF sími: 487-5028.
EINBÝLISHÚS MEÐ BÍLSKÚR VIÐ DYNSKÁLA 3 Á HELLU.
Húsið er byggt úr timbri og er klætt að utan með bárujárni. Nýlega hefur verið skipt um alla glugga og gler, sem og útihurðir. Húsið telur:
Anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með korkparketi á gólfi og nýlegri innréttingu með innbyggðum ofni, kæliskáp og frysti. Ennfremur fylgir með uppþvottavél.
Stofu með plastparketi á gólfi
Gang með plastparketi á gólfi.
Þrjú svefnherbergi, eitt með flísum á gólfi og tvö með plastparketi á gólfum. Lausir skápar eru í tveimur þeirra og fylgja með við sölu.
Baðherbergi með flísum á gólfi, flísaplötum á veggjum, handklæðaofni, sturtuklefa og lítilli innréttingu.
Þvottahús sem jafnframt er bakinngangur í húsið með máluðu steingólfi.
Bílskúrinn er
56,6 fm. Hann er frágenginn að öðru leyti en því að eftir er að klæða neðan í loft. Á honum eru innkeyrsludyr með hurðaopnara. Við húsið er;
timburverönd með skjólveggum, steypt stétt með hitalögnum, malarborið bifreiðastæði og gróinn garður. Á lóðinni er lítill
timburskúr, sem fylgir með við söluna. Eignin er miðsvæðis á Hellu og stutt í skóla, leikskóla, íþróttahús, sundlaug, verslun og ýmsa þjónustu.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.Nánari upplýsingar veita:
Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528 og netfang:
[email protected]Ágúst Kristjánsson lgf. gsm: 893-8877 og netfang:
[email protected]