FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-8688
JÖRÐIN EFRI-HOLT Í RANGÁRÞINGI EYSTRA.
Jörðin er staðsett undir Vestur-Eyjafjöllum. Stærð hennar er talin vera rúmir 100 hektarar, sem allt er gróið land og grasgefið. Ræktað land er talið vera 19,1 hektari samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Búskap var hætt á jörðinni fyrir nokkrum árum. Af bæjarhólnum er einkar fallegt útsýni upp til Eyjafjalla og Eyjafjallajökuls. Jörðin er í u.þ.b 1,5 klst akstursfjarlægð frá Reykjavík. Vel staðsett og áhugaverð jörð með ýmis tækifæri.
Íbúðarhús:
Húsið er byggt úr timbri árið 1979 og er klætt að utan með liggjandi timburklæðningu, stærð 97,9 fm. Húsið telur: Anddyri með dúk á gólfi. Eldhús með korkparketi á gólfi og eldhúsinnréttingu. Stofu með plastparketi á gólfi. Gang með korkparketi á gólfi. Þrjú svefnherbergi með korkparketi á gólfum, skápur er í hjónaherberginu. Baðherbergi með dúk á gólfi, sturtu og lítilli innréttingu. Þvottahús með máluðu gólfi og þar er annar inngangur í húsið. Húsið er kynt með rafmagni. Húsið er í ágæstis ástanidi en þó er fúi í nokkrum gluggum og hluta af þakkanti. Búið er að tengja ljósleiðara við húsið.
Útihús:
Vélageymsla, húsið er járnklætt stálgreindarhús byggt á steyptum grunni með steyptri botnplötu árið 1992, stærð 85,9 fm.
Nokkur eldri útihús, byggð á árunum 1950 til 1976. Heildarstærð þeirra er 585 fm.
Allar nánari upplýsingar veita:
Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang:
[email protected]Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877, netfang:
[email protected]