Hallgerðartún 42-44, 860 Hvolsvöllur
58.000.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
143 m2
58.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
3.830.000

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028

PARHÚS Í BYGGINGU VIÐ HALLGERÐARTÚN 42 TIL 44
Hvor íbúð er 143 fm með, anddyri, stofu, eldhúsi, 3 svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, geymslu og bílskúr.  Íbúðirnar afhendast við fokheldi og verða tilbúnar að utan, veggir og loft einangrað og gengið frá lofttúðum, rakasperrur og lagnagrind komin. Húsið er timbureiningahús á steyptum grunni með steyptri plötu.  Allar teikningar fylgja.
 
Hægt er að semja um að fá húsið afhent fullbúið eða á öðrum byggingastigum.

Nánari lýsing á því sem fylgir húsinu
Hvít JKE eldhúsinnréttingar og hvítir fataskápar fylgja.
Öll heimilistæki í eldhús fylgja (helluborð, uppþvottavél, ísskápur, háfur, ofn, örbylgjuofn).
JKE innrétting með vaski á salerni og spegill með ljósum.
Vandaðir hvítir álklæddir timburgluggar og hurðir með þreföldu gleri frá Nordan (orkusparnaður).
Hvítar innihurðir og hvít loftaklæðning/listar.
Eikar parket og gólflistar
Útveggir að innan og innveggir klæddir með OSB plötum undir gifs
Þak er klætt svörtu bárujárni sem sett er á lektur
Útveggir einangraðir með 240mm steinull og þak með 390mm steinull (orkusparnaður).
Húseiningarnar eru byggðar úr timbri við bestu aðstæður í norður Svíþjóð.
Húsið er panelklætt að utan og búið er að mála húsið eina umferð.
Pallaefni fyrir sólpall fylgir mv.v teikningar.
Einstaklega góð staðsetning við botnlanga í Hallgerðartúni
Verð miðast við ofangreint en hægt er að semja um annan afhendingartíma og önnur byggingarstig við afhendingu.

Gatnagerðargjald og tengigjöld veitna eru greidd af seljanda, en kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veita:
Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877, netfang: [email protected]
Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang: [email protected]
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.