Fannberg fasteignasala ehf. sími: 487-5028
BERGÞÓRSHVOLL ÍBÚÐARHÚS OG BÍLSKÚR
Húsið, sem í dag er nýtt til útleigu til ferðamanna er byggt úr steinsteypu árið 1978, stærð 145 fm. Húsið er klætt að utan með steniklæðningu og það telur:
Anddyri með teppi á gólfi.
Gang með plastparketi á gólfi.
Stofu með plastparketi á gólfi og hurð út í garðinn.
Eldhús með vinyl dúk á gólfi og ágætri innréttingu.
Búr með vinyldúk á gólfi.
Fjögur svefnherbergi með plastparketi á góflum.
Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, sturtu og lítilli innréttingu.
Salerni með vinyldúk á gólfi.
Þvottahús, sem jafnframt er bakinngangur í húsið með máluðu gólfi. Húsgögn geta fylgt með við sölu. Í rekstrarleyfi er heimiluð gisting fyrir 9 manns í húsinu. Við húsið er
verönd. Bílskúrinn er byggður úr steinsteypu árið 1985, stærð 34 fm. Á honum eru tvær gönguhurðir.
Húsunum fylgir um 3 hektara eignarlóð. Mögulegt er að fá keypta með um 50 hektara landspildu. Um er að ræða gott beitland og um 3,5 hektarar af því eru ræktaðir. Í myndasafni með eigninni má sjá yfirlitsmyndir af því landi sem tilheyrir eigninni og svo viðbótarlandinu.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.Allar nánari upplýsingar veita:
Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877, netfang:
[email protected]Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang
[email protected]Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.